Einar og Gísli úr leik í bikarnum

Einar Rafn Eiðsson í leik með FH.
Einar Rafn Eiðsson í leik með FH. mbl.is/Árni Sæberg

Einar Rafn Eiðsson og Gísli Jón Þórisson og félagar þeirra í Nötteröy töpuðu í kvöld fyrir Lilleström, 25:24, á útivelli í 16-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í handknattleik. Leikurinn var hnífjafn allan tímann. Í hálfleik var staðan jöfn, 11:11.

Einar Rafn var næst markahæstur hjá Nötteröy með sex mörk. Gísli Jón náði ekki að skora að þessu sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert