Hand­bolt­inn í beinni - Olís-deild karla

Ásbjörn Friðriksson, FH-ingur, og Heimir Óli Heimisson, leikmaður Hauka.
Ásbjörn Friðriksson, FH-ingur, og Heimir Óli Heimisson, leikmaður Hauka. mbl.isSigurgeir Sigurðsson

Í kvöld hefst 3. umferð Olís-deildar karla með þremur leikjum. Akureyri tekur á móti Stjörnunni í íþróttahöllinni á Akureyri, HK og Valur mætast í íþróttahúsinu í Digranesi og Hafnarfjarðarliðinu, FH og Haukar, eigast við í Kaplakrika. Fylgst verður með leikjunum í HANDBOLTINN Í BEINNI.

Blaðamenn mbl.is verða á öllum leikjum kvöldsins. Lesendur og áhorfendur á leikjum kvöldsins eru hvattir til þess að taka þátt í umræðum um leiki kvöldsins á Twitter og merkja færslur sínar með kassamerki #mblsport.

Leikir kvöldsins:

kl. 19 Akureyri - Stjarnan
kl. 19.30 HK - Valur
kl. 19.30 FH - Haukar

Fylgj­ast má með hér á mbl.is í HAND­BOLT­INN Í BEINNI.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert