Ísak: Ljúft að eiga montréttinn

Ísak Rafnsson stórskytta FH-inga og varnarjaxl gat eðlilega ekki leynt gleði sinni eftir sigurinn á erkifjendunum í Haukum í Olís-deildinni í handknattleik í kvöld.

„Það var kominn tími til að vinna þá og mér fannst við gera það sannfærandi þótt munurinn hafi bara verið eitt mark í lokin. Það er ljúft að eiga montréttinn,“ sagði Ísak við mbl.is en allt viðtalið við hann er í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert