Jicha úr leik næstu sex vikurnar

Filip Jicha.
Filip Jicha. AFP

Tékkinn Filip Jicha fyrirliði þýska meistaraliðsins Kiel verður frá keppni næstu sex vikurnar.

Jicha gekkst í dag undir aðgerð á ökkla en meiðslin hafa háð stórskyttunni mikið um nokkurt skeið. Jicha kemur til með að missa af næstu 9-10 leikjum Kiel, þar á meðal fjórum leikjum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Kiel mætir RK Zabreb í Meistaradeildinni á útivelli á sunnudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert