Birna Berg með fimm mörk

Birna Berg Haraldsdóttir leikmaður sænska meistaraliðsins Sävehof.
Birna Berg Haraldsdóttir leikmaður sænska meistaraliðsins Sävehof. Ljósmynd/Guðmundur Svansson

Birna Berg Haraldsdóttir, landsliðskona í handknattleik, skoraði fimm mörk þegar Sävehof vann Tyresö í sænsku úrvalsdeildinni í dag á útivelli, 30:17. Sænsku meistararnir voru með sjö marka forskot í hálfleik, 15:8.

Þetta var annar sigur Sävehof á leiktíðinni sem er nýhafin. Liðið er efst ásamt fleiri með fjögur stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert