Fannar og félagar á sigurbraut

Fannar Þór Friðgeirsson handknattleiksmaður hjá Grosswallstadt í Þýskalandi.
Fannar Þór Friðgeirsson handknattleiksmaður hjá Grosswallstadt í Þýskalandi. Ljósmynd/grosswallstadt.de

Fannar Þór Friðgeirsson og samherjar hans hjá Grosswallstadt unnu í gærkvöldi Hildesheim, 28:23, í þýsku 2. deildinni í handknattleik á heimavelli. Með sigrinum komst Grosswallstadt upp í sjötta sæti deildarinnar með átta stig að loknum sex leikjum. 

Fannar Þór skoraði þrjú mörk í leiknum. 

Rimpar og Leipzig er á toppi 2. deildar með fullt hús stiga eftir fimm leiki hvort. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert