Fram og Grótta með fullt hús

Úr leik Fram og ÍBV í dag.
Úr leik Fram og ÍBV í dag. mbl.is/Golli

Þriðja umferð Olís-deildar kvenna í handknattleik fer fram í dag. Einum leik er þó enn ólokið, viðureign Hauka og Selfoss.

Grótta lagði Fylki með tveggja marka mun, 18:16, og Fram lagði ÍBV, 27:23. Þá lagði Stjarnan ÍR, KA/Þór tapaði á útivelli fyrir FH og HK skellti Val, en markaskorarana úr leikjum dagsins má sjá hér að neðan. 

HK – Valur 27:25

Mörk HK: Þórhildur Braga Þórðardóttir 9, Heiðrún Björk Helgadóttir 6, Emma Harvin Sardardóttir 3, Sigríður Hauksdóttir 3, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Eva Hrund Harðardóttir 2, Sóley Ívarsdóttir 1, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 1.

Mörk Vals: Sigurlaug Rúnarsdóttir 8, Morgan Marie McDonald 6, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 3, Marija Mugsoa 3, Hildur Marín Andrésdóttir 2, Bryndís Elín Halldórsdóttir 2, Jónína Líf Ólafsdóttir 1.

FH – KA/Þór 23:20

Mörk FH: Ingibjörg Pálmadóttir 7, Steinunn Snorradóttir 5, Aníta Mjöll Ægisdóttir 4, Birna Íris Helgadóttir 3, Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 2, Arnheiður Guðmundsdóttir 2.

Mörk KA/Þórs: Paula Chirila 7, Birta Fönn Sveinsdóttir 4, Katrín Vilhjálmsdóttir 4, Steinunn Guðjónsdóttir 2, Erla Hleiður Tryggvadóttir 2, Laufey Lára Höskuldsdóttir 1.

Grótta – Fylkir 18:16

Mörk Gróttu: Anett Köpli 6, Eva Björk Davíðsdóttir 4, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 3, Lovísa Thompson 2.

Mörk Fylkis: Patricia Szölösi 6, Sigrún Birna Arnardóttir 3, Díana Sigmarsdóttir 2, Hildur Björnsdóttir 2, Kristjana Björk Steinarsdóttir 1, Vera Pálsdóttir 1, Thea Imani Sturludóttir 1.

ÍR – Stjarnan 16:19

Mörk ÍR: Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 6, Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir 4, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 3, Auður Margrét Pálsdóttir 1, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 1, Sigrún Emma Björnsdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar: Ester Viktoría Ragnarsdóttir 5, Þórhildur Gunnarsdóttir 5, Guðrún Ósk Kristjánsdóttir 3, Arna Almarsdóttir 2, Guðrún Erla Bjarnadóttir 2, Kristín Scheving 1, Stefanía Theodórsdóttir 1.

Fram – ÍBV 27:23

Mörk Fram: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 8, Ragnheiður Júlíusdóttir 6, Elísabet Gunnarsdóttir 3, Steinunn Björnsdóttir 3, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Hekla Rún Ámundadóttir 2, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1, Merthe Sördal 1, María Karlsdóttir 1.

Mörk ÍBV: Vera Lopes 7, Díana Dögg Magnúsdóttir 6, Telma Amado 4, Ester Óskarsdóttir 3, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2, Elín Anna Baldursdóttir 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert