Sunna og félagar náðu í stig

Sunna Jónsdóttir.
Sunna Jónsdóttir. Ómar Óskarsson

Sunna Jónsdóttir, landsliðskona í handknattleik, og samherjar hennar í sænska úrvalsdeildarliðinu BK Heid gerðu í dag jafntefli við Skånela, 22:22, á heimavelli. Þar með krækti BK Heid í sín fyrstu stig í deildarkeppninni á þessari leiktíð en þetta var annar leikur liðsins.

Heid var tveimur mörkum undir hálfleik, 12:10. Sunna skoraði þrjú mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert