Spænska meistaraliðið Barcelona, sem Guðjón Valur Sigurðsson leikur með, vann sænska meistaraliðið Alingsås, 38:28, í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í dag en leikið var í Svíþjóð.
Svíarnir héldu í við Barcelona rétt í byrjun leiks en eftir að staðan var jöfn, 6:6, stungu leikmenn Barcelona þá af og unnu öruggan tíu marka sigur.
Guðjón Valur skoraði þrjú mörk í leiknum. Rickard Frisk, markvörður Alingsås, varði þrjú vítaköst í leiknum, þar á meðal frá Íslendingnum. Siarhei Rutenka, leikmaður Spánarmeistaranna, fékk beint rautt spjald þegar fjórar mínútur voru til leiksloka.
Danski línumaðurinn Jesper Nøddesbo var markahæstur hjá Barcelona með níu mörk. Jesper Konradsson, leikstjórnandi, Alingsås, skoraði flest mörk fyrir sænska liðið, fimm.