Stórsigur hjá Löwen

Alexander Petersson.
Alexander Petersson. Ljósmynd/rhein-neckar-loewen.de

Rhein-Neckar Löwen átti ekki í vandræðum með að leggja Minden að velli á útivelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.

Löwen burstaði Minden, 37:25, þar sem þeir Alexander Petersson skoraði sjö mörk og Stefán Rafn Sigurmannsson eitt mark Löwen sem trónir á toppi deildarinnar.

Sigurbergur Sveinsson skoraði ekki mark þegar HC Erlangen steinlá fyrir Flensburg í Campushalle í Flensburg, 27:17. 

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlín unnu hinsvegar nauman en sætan sigur á Lemgo, 29:28, á útivelli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert