Bjarki og Hannes fá nýjan þjálfara

Bjarki Már Elísson í loftinu í leik með Eisenach. Hann …
Bjarki Már Elísson í loftinu í leik með Eisenach. Hann fær nýjan þjálfara hjá liðinu. Ljósmynd/thsv-eisenach.de

Bosníumaðurinn Velimir Petkovic tekur við þjálfun þýska 2. deildar liðsins Eisenach sem þeir Bjarki Mári Elíasson og Hannes Jón Jónsson handknattleiksmenn leika með. Petkovic tekur við þjálfun liðsins af Aðalsteini Eyjólfssyni sem leystur var frá störfum á föstudagskvöldið eftir fjögur og hálft ár við stjórnvölinn.

Petkovic er þrautreyndur þjálfari og stýrði m.a. 1. deildar liðinu Göppingen um níu ára skeið en var sagt upp í desember á síðasta ári. Undir stjórn Petkovic vann Göppingen EHF-keppnina 2010 og 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert