Naumur sigur ÍBV í Hafnarfirði

Vera Lopes var markahæst hjá ÍBV gegn Haukum í kvöld.
Vera Lopes var markahæst hjá ÍBV gegn Haukum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

ÍBV vann nauman sigur á Haukum, 30:28, í hörkuleik í Olís-deild kvenna í kvöld en leikið var í Schenkerhöllinni á Ásvöllum, heimavelli Hauka. Gestirnir voru marki yfir í hálfleik, 16:15. 

ÍBV komst þar með upp að hlið Fram og Gróttu með átta stig í deildinni en Eyjaliðið hefur leikið fimm leiki meðan hin tvö eiga fjóra leiki að baki. Haukar sitja í fimmta sæti með fjögur stig. 

Mörk Hauka: Marija Gedroit 9, Ásta Björk Agnarsdóttir 6, Karen Helga Díönudóttir 5, Ragnheiður Sveinsdóttir 2, Ragnheiður Ragnarsdóttir 2, Viktoría Valdimarsdóttir 2, Silja Ísberg 1, Gunnhildur Pétursdóttir 1.

Mörk ÍBV: Vera Lopez 9, Díana Dögg Magnúsdóttir 7, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 7, Telma Amado 4, Ester Óskarsdóttir 3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert