Einar Ingi og félagar í annað sæti

Einar Ingi Hrafnsson
Einar Ingi Hrafnsson Morgunblaðið/Ómar

Einar Ingi Hrafnsson og félagar hans í Arendal unnu Halden, 30:26, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik á heimavelli í kvöld. Með sigrinum komst Arendal upp í annað sæti deildarinnar. Liðið hefur átta stig að loknum fimm leikjum og er aðeins tveimur stigum á eftir Bodö sem er á toppnum. Arendal á leik til góða á Bodö.

Einar Ingi skoraði eitt mark í leiknum í kvöld. 

Alfreð Örn Finnsson, þjálfari Stohamar, leiddi lið sitt til sigurs á Nordstrand, 33:20, í úrvalsdeild kvenna í norska handboltanum í kvöld.  Storhamar er í sjötta sæti af 12 liðum með sex stig eftir sjö leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert