Kristinn samdi við Framara

Kristinn Björgúlfsson.
Kristinn Björgúlfsson. Ljósmynd/fram.is

Handknattleiksdeild Fram og Kristinn Björgúlfsson hafa komist að samkomulagi um að Kristinn gangi til liðs við félagið eins og mbl.is greindi frá í gær.

Kristinn kemur til Framara frá ÍR-ingum og spilar hann sinn fyrsta leik með Safamýrarliðinu á morgun þegar það mætir Stjörnunni í Olís-deildinni.

Kristinn mun einnig koma að þjálfun hjá Fram og hefur verði ráðinn þjálfari  þriðja flokks kvenna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert