Löwen heldur sínu striki

Alexander Petersson.
Alexander Petersson. Ljósmynd/rhein-neckar-loewen.de

Rhein-Neckar Löwen heldur sínu striki í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Í kvöld vann liðið Balingen, 32:27, á útivelli og hefur tveggja stiga forskot á Kiel sem er í öðru sæti en Kiel vann einnig sína viðureign í kvöld.

Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrri Löwen en Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki á meðal markaskorara.

Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Kiel í sigri liðsins á Lübbecke, 24:21. 

Löwen hefur 18 stig eftir 10 leiki en Kiel 16. Göppingen er í þriðja sæti með 13 stig en á tvo leiki til góða á toppliðin tvö. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert