Lærisveinar Arons Kristjánssonar í danska liðinu KIF Kolding gerðu í dag jafntefli við Barcelona, 27:27, í toppslag B-riðils í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag.
Barcelona var 27:25 þegar skammt var til leiksloka en Kolding tókst að jafna metin og kom jöfnunarmarkið úr vítakasti nokkrum sekúndum fyrir leikslok.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk fyrir Barcelona en Nikola Karabatic var markahæstur i liði Börsunga með 6 mörk. Bo Spelleberg var atkvæðamestur í liði KIF Kolding með 7 mörk.
Barcelona og Kolding eru efst og jöfn í riðlinum með 7 stig eftir fjóra leiki.