Hermann með 11 mörk fyrir KR

Hermann Björnsson.
Hermann Björnsson. mbl.is/Golli

Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í handknattleik í kvöld. KR sigraði Þrótt á útivelli 31:26 og Selfoss vann útisigur á ÍH 21:16.

Hermann Björnsson var langmarkahæstur í leik Þróttar og KR og skoraði
11 mörk fyrir KR en Jóhann Gunnarsson og Eyþór Vestmann gerðu 6 mörk hvor. Viktor Jóhannsson skoraði 7 mörk fyrir Þrótt og Leifur Óskarsson 4.

Grótta er með 10 stig á toppi 1. deildar, Víkingur 8, Selfoss 8, Hamrarnir 8, Fjölnir 6, KR 6, ÍH 4, Mílan 3 og Þróttur 1 stig.

Hamrarnir taka á móti Víkingi í KA-heimilinu á Akureyri á morgun klukkan 16 og Mílan fær topplið Gróttu í heimsókn til Selfoss á sunnudagskvöldið klukkan 20.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert