Erfiðlega gengur hjá Fram-liðinu að snúa lukkuhjólinu sér í hag eftir erfiða byrjun í Olís-deildinni í handknattleik karla. Sjötta tap liðsins varð raunin í gærkvöldi þegar Fram fékk Val í heimsókn, lokatölur 25:20. Valur getur fyrst og fremst þakkað fyrrverandi leikmanni Fram, Stephen Nielsen, og Geir Guðmundssyni sigurinn.
Nielsen var hjallinn sem Fram-liðið komst ekki yfir þegar mest á reið og munurinn á liðunum varð orðinn aðeins eitt mark oftar en einu sinni í síðari hálfleik. „Það var sérstakt að koma hingað í kvöld og mæta Fram í fyrsta sinn í alvöru leik í deildarkeppninni. Hér leið mér og vel og ég eignaðist marga vini sem ég á enn,“ sagði hinn danski Stephen Nielsen á sinni ágætu íslensku í samtali við blaðamann eftir leikinn í gær. „En ég er mjög ánægður með stigin tvö. Nú erum við komnir á fulla ferð í toppbaráttuna í deildinni þar sem við viljum vera,“ sagði Nielsen ennfremur.
Sjá nánar umfjöllun um leiki gærkvöldsins í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.