Hildur hetja Koblenz

Hildur Þorgeirsdóttir á ferðinni með landsliðinu.
Hildur Þorgeirsdóttir á ferðinni með landsliðinu. mbl.is/Ómar

Landsliðskonan Hildur Þorgeirsdóttir tryggði Koblenz/Weibern sigur á Bietigheim á útivelli í gær, 26:25, með marki á síðustu sekúndu leiksins, í 6. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik.

Bietigheim var með boltann í stöðunni 25:25 og tók leikhlé þegar 40 sekúndur voru eftir. Branka Zec varði lokaskot þeirra og Hildur og félagar geystust fram þar sem Hildur skoraði sitt annað mark í leiknum og tryggði sigurinn í blálokin.

Þetta var annar sigur Koblenz á leiktíðinni og liðið er því með 4 stig í 10. sæti en Bietigheim er í 13. sæti, fallsæti, með 3 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert