Ásgeir Örn með gegn Svartfjallalandi

Ásgeir Örn Hallgrímsson verður með gegn Svartfellingum.
Ásgeir Örn Hallgrímsson verður með gegn Svartfellingum. mbl.is/Ómar

Ásgeir Örn Hallgrímsson mun koma til móts við íslenska landsliðið í handknattleik í Svartfjallalandi um helgina og leika gegn heimamönnum á sunnudaginn í mikilvægum leik í undankeppni EM.

Þetta staðfesti Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í dag. Ásgeir missir af leiknum við Ísrael í Laugardalshöll annað kvöld en hann átti von á barni ásamt konu sinni. Barnið er nú fætt og því mun Ásgeir ferðast til Svartfjallalands um helgina.

Íslenski hópurinn heldur frá Íslandi á föstudag til Kaupmannahafnar, og fer þaðan áfram til Svartfjallalands á laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert