Kári Kristján og Björgvin utan hóps

Kári Kristján Kristjánsson
Kári Kristján Kristjánsson mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Kári Kristján Kristjánsson og Björgvin Hólmgeirsson verða utan hóps þegar íslenska landsliðið í handknattleik mætir Ísraelsmönnum í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins.

Aron Pálmarsson er meiddur og spilar ekki og þá er Ásgeir Örn Hallgrímsson fjarri góðu gamni í kvöld en hann verður klár í slaginn í leiknum á móti Svartfellingum á sunnudaginn.

Flautað verður til leiks í Laugardalshöllinni klukkan 19.30 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert