Lazarov skaut Svisslendinga í kaf

Kiril Lazarov.
Kiril Lazarov. AFP

Kiril Lazarov var óstöðvandi þegar Makedónía bar sigurorð af Sviss, 27:20, í undankeppni EM í handknattleik í kvöld.

Lazarov, sem leikur með Guðjóni Val Sigurðssyni hjá Barcelona, skoraði helming marka Makedóníumanna eða 13 talsins. Hann skoraði sjö af fyrstu 12 mörkum sinna manna og réðu svissnesku varnarmennirnir ekkert við örvhentu skyttuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert