Serbar lögðu Svartfellinga

Marko Vujin skoraði 7 mörk fyrir Serba.
Marko Vujin skoraði 7 mörk fyrir Serba. imago sportfotodienst

Serbar báru í kvöld sigurorð af Svartfellingum, 25:21, í undankeppni EM í handknattleik en þjóðirnar leika í sama riðli og Íslendingar og Ísraelsmenn sem eigast við í Laugardalshöll.

Serbar voru 10:9 yfir eftir fyrri hálfleikinn og þeir bættu við forskotið í seinni hálfleik. Marko Vujin, leikmaður Kiel, og Darko Djukic skoruðu 7 mörk hvor fyrir Serba en Fahrudin Melic var markahæstur í liði Svartfellinga með 6 mörk en þeir taka á móti Íslendingum á sunnudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert