Stórsigur hjá lærisveinum Dags

Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Þjóðverja.
Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Þjóðverja. AFP

Lærisveinar Dags Sigurðssonar í þýska landsliðinu í handknattleik unnu í kvöld stórsigur á Finnum, 30:18, þegar þjóðirnar áttust við í undankeppni EM í Þýskalandi í kvöld.

Þjóðverjar höfðu tögl og hagldir allan tímann og í hálfleik var staðan, 19:8. Steffen Weinhold og Uwe Gensheimer voru markahæstir í liði Þjóðverja með 4 mörk en 14 leikmenn Þjóðverja komust á blað í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert