Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, hefur ákveðið að gera þrjár breytingar á landsliðinu fyrir leikinn við Svarfellinga á sunnudaginn frá sigurleiknum við Ísrael í Laugardalshöllinni í gærkvöldi.
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Björgvin Þór Hólmgeirsson og Kári Kristján Kristjánsson koma inn í hópinn í stað Arnórs Þórs Gunnarssonar, Ernis Hrafns Arnarsonar og Gunnars Steins Jónssonar.
Íslenska landsliðið mætir Svartfellingum í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í Bar í Svartfjallalandi á sunnudaginn. Flautað verður til leiks klukkan 17.