Ágúst valdi þrjá nýliða

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir er einn nýliðanna í landsliðshópnum.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir er einn nýliðanna í landsliðshópnum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik hefur valið 22 leikmenn í landsliðshóp Íslands fyrir leikina í forkeppni HM 2015 við Ítalíu og Makedóníu.

Þrír nýliðar eru í hópnum að þessu sinni en það eru þær Díana Dögg Magnúsdóttir. ÍBV, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfossi, og Þórey Ásgeirsdóttir, Rælingen.

Markverðir:
Florentina Stanciu, Stjörnunni
Guðrún Ósk Maríasdóttir, FH
Melkorka Mist Gunnarsdóttir, Fylki

Aðrir leikmenn:
Arna Sif Pálsdóttir, SK Aarhus
Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram
Birna Berg Haraldsdóttir, Sävehof
Bryndís Elín Halldórsdóttir, Val
Brynja Magnúsdóttir, Flint Tönsberg
Díana Dögg Magnúsdóttir, ÍBV
Hildigunnur Einarsdóttir, Tertnes
Hildur Þorgeirsdóttir, Koblenz
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfossi
Karen Helga Díönudóttir, Haukum
Karen Knútsdóttir, Nice
Ramune Pekarskyte, Le Havre
Rut Jónsdóttir, Randers
Steinunn Björndóttir, Fram
Steinunn Hansdóttir, Skanderborg
Sunna Jónsdóttir, BK Heid
Unnur Ómarsdóttir, Skrim
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Våg Vipers
Þórey Ásgeirsdóttir, Rælingen

Liðið heldur af stað mánudaginn 24. nóvember til Kaupmannahafnar og æfir þar og gistir í eina nótt áður en liðið leggur af stað til Ítalíu á þriðjudeginum. liðið mun mæta Ítölum í Chieti fimmtudaginn 27. nóvember kl 17.00. Sunnudaginn 30. nóvember kl 16.00 mæta svo Ítalir í Laugardalshöllina í síðari leik liðanna. Ísland mætir svo Makedóníu miðvikudaginn 3. desember kl 19.30 í Laugardalshöll. Daginn eftir heldur svo íslenska liðið af stað til Makedóníu þar sem síðari leikur liðanna fer fram í Skopje laugardaginn 6. desember kl 16.45.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert