Gunnar: Köstuðum frá okkur sigri

Gunnar Magnússon þjálfari ÍBV sagði við mbl.is eftir ósigurinn gegn Aftureldingu í kvöld, 23:24, í Olís-deild karla í handknattleik að það væri hrikalega svekkjandi að hafa þurft að sjá á bak báðum stigunum.

Gunnar sagði að liðið hefði kastað frá sér sigrinum eftir að hafa verið með frumkvæðið nær allan leikinn. Það sem hefði orðið liðinu að falli hefði verið ódýrir tæknifeilar á lokakaflanum og klaufaleg brottvísun sem gerði að verkum að Afturelding náði undirtökunum og tveggja marka forystu þegar stutt var eftir af leiknum.

Viðtalið í heild má sjá á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert