Árni Steinn tryggði Haukunum stig

Haukar og FH skildu jöfn, 22:22, í háspennuleik í Olís-deildinni í handknattleik en liðin áttust við að Ásvöllum í kvöld.

Haukarnir höfðu fimm marka forskot eftir fyrri hálfleikinn, 13:8, en FH-ingar voru ekki af baki dottnir. Þeir náðu smátt og smátt að saxa á forskotið og komast yfir undir lokin en Árni Steinn Steinþórsson tryggði Haukunum janftefli þegar hann jafnaði metin 15 sekúndum fyrir leikslok.

Mörk Haukar: Þröstur Þráinsson 6/3, Árni Steinn Steinþórsson 4, Einar Pétur Pétursson 4, Tjörvi Þorgeirsson 3, Jón Þorbjörn Jóhannsson 3, Adam Haukur Baumruk 1, Janus Daði Smárason 1.
Varin skot: Giedrius Morkunas 19/1.
Utan vallar: 8 mínútur

Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 6/1, Ísak Rafnsson 4, Daníel Matthíasson 3, Andri Hrafn Hallsson 3, Ragnar Jóhannsson 3, Andri Berg Haraldsson 1, Magnús Óli Magnússon 1, Steingrímur Gústafsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 13, Brynjar Darri Baldursson 2.
Utan vallar: 8 mínútur

Haukar 22:22 FH opna loka
60. mín. Ísak Rafnsson (FH) á skot í slá
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert