Ísak: Öll stig telja

„Öll stig telja en ég hefði viljað hafa þau tvö,“ sagði FH-ingurinn Ísak Rafnsson við mbl.is eftir jafntefli sinna manna gegn Haukum í Olís-deildinni í handknattleik í kvöld.

„Já og nei,“ sagði Ísak þegar hann var spurður hvort hann væri ánægður með jafnteflið. Ég var gríðarlega ósáttur með fyrri hálfleikinn. Þetta var ekki boðleg frammistaða og það á móti Haukum. Að sama skapi er ég fáránlega sáttur með með seinni hálfleikinn og hvernig við komum inn í hann,“ sagði Ísak en allt viðtalið er hægt að skoða í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert