Níundi sigur Framara

Framarar hafa ekki stigið feilspor í Olís-deildinni í vetur.
Framarar hafa ekki stigið feilspor í Olís-deildinni í vetur. mbl.is/Árni Sæberg

Framkonur eru enn með fullt hús stiga á toppi Olís-deildar kvenna í handknattleik en þær unnu níunda sigur sinn í jafnmörgum leikjum í kvöld þegar þær lögðu FH að velli í Safamýrinni, 21:15.

Fram var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 12:8. Liðið hefur nú tveggja stiga forskot á Gróttu og ÍBV. FH er í 10. sæti með 6 stig.

Mörk Fram: Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 4, Elísabet Gunnarsdóttir 4, María Karlsdóttir 4, Ásta Birna Gunnarsdóttir 3, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3, Steinunn Björnsdóttir 2, Elva Þóra Arnarsdóttir 1.

Mörk FH: Aníta Mjöll Ægisdóttir 6, Rebekka Guðmundsdóttir 2, Ingibjörg Pálmadóttir 2, Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 1, Steinunn Snorradóttir 1, Birna Íris Helgadóttir 1, Alana Elín Steinarsdóttir 1, Sara Kristjánsdóttir 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert