Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson hafa verið settir dómarar á viðureign Orlen Wisla Plock og Barcelona í B-riðli Meistaradeildar Evrópu laugardaginn 6. desember. Þetta verður þriðji leikurinn sem þeir félagar dæma í Meistaradeildinni á þessari leiktíð, þar af annar leikurinn hjá stórliði Barcelona sem Guðjón Valur Sigurðsson leikur með.
Viðureign Wisla Plock og Barcelona fer fram í Plock Arena í Póllandi. Sem stendur er Barcelona í efsta sæti B-riðils en pólska liðið í fjórða sæti.