Fjölnismenn kæra Akureyringa

Hinn 16 ára gamli Kristján Örn Kristjánsson skoraði 10 mörk …
Hinn 16 ára gamli Kristján Örn Kristjánsson skoraði 10 mörk fyrir Fjölni gegn Akureyri í umræddum bikarleik. mbl.is/Ómar

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur lagt inn kæru til HSÍ á hendur Akureyrar Handboltafélags vegna meints brots á reglum um að ekki megi ræða við samningsbundna leikmenn.

Þetta kemur fram á vefmiðlinum fimmeinn.is. Þar segir að samkvæmt kærunni hafi Akureyringar sett sig í samband við 16 ára gamlan leikmann Fjölnis, eftir bikarleik Fjölnis og Akureyrar á dögunum. Umræddur leikmaður er samningsbundinn Fjölni til ársins 2016.

Akureyri vann bikarleikinn 31:24 og leikur í 8-liða úrslitunum í febrúar. Fjölnir hefur átt ágætu gengi að fagna í 1. deild í vetur og er í 3. sæti þrátt fyrir tap gegn Víkingi í gærkvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert