Guðjón Valur markahæstur í markaregni

Guðjón valur Sigurðsson átti enn einn stórleikinn fyrir Barcelona í …
Guðjón valur Sigurðsson átti enn einn stórleikinn fyrir Barcelona í dag. Ljósmynd/Barcelona

Guðjón Valur Sigurðsson átti enn einn stórleikinn fyrir spænska liðið Barcelona þegar liðið lagði Ademar León í spænska handboltanum á útivelli í dag. Það má með sanni segja að mörkunum hafi rignt því alls voru skoruð áttatíu mörk, lokatölur 43:37 Börsungum í vil.

Guðjón Valur var markahæstur með níu mörk úr tíu skotum, en staðan í hálfleik var 22:18 fyrir Barcelona, sem er enn ósigrað á toppi spænsku deildarinnar og hefur þar fjögurra stiga forskot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert