Árni Þór úr leik fram á nýtt ár

Árni Þór Sigtryggsson.
Árni Þór Sigtryggsson. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Árni Þór Sigtryggsson leikur ekki meira með handknattleiksliðinu EHV Aue í þýsku 2. deildinni í handknattleik það sem eftir er árs. EHV Aue á þrjá leiki eftir fram að vetrarleyfi sem hefst um áramótin. 

Árni Þór handarbrotnaði í leik með Aue um síðustu helgi. Hann hefur verið einstaklega óheppinn á þessari leiktíð. Hann var lengi frá í haust verið vegna meiðsla sem hann hlaut áður en keppnistímabilið hófst. Fjarvera hans er afar bagaleg fyrir Aue-liðið sem er í 10. sæti af 20 liðum með 18 stig eftir 18 leiki en Árni Þór hefur leikið stórt hlutverk jafnt í varnar- sem sóknarleik liðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert