Kolding heldur sínu striki

Aron Kristjánsson
Aron Kristjánsson mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Aron Kristjánsson og leikmenn hans hjá Kolding héldu sínu striki í danska handboltanum í kvöld og unnu útisigur á Mors-Thy Håndbold 26:22. Kolding situr í toppsæti deildarinnar enda hefur liðið aðeins tapað tvívegis í sautján leikjum.

Róbert Aron Hostert lék ekki með Mors-Thy en Guðmundur Árni Ólafsson skoraði tvívegis.

Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk fyrir Midtjylland sem vann Odder 28:25 á heimavelli.

SönderjyskeE, lið Daníels Freys Andréssonar, gerði jafntefli 24:24 við GOG á útivelli.

Ólafur Gústafsson lék ekki með Álaborg sem vann öruggan sigur á Skjern 30:22.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert