Eins mark sigur er sætari

„Það er æðislegt að fara inn í frí í deildarkeppninni með sigur og eins marks sigur en enn sætari," segir Kristófer Fannar Guðmundsson, markvörður Fram, eftir sigurinn á Stjörnunni, 25:24, í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld. Kristófer Fannar átti stórleik í síðari hálfleik og átti hvað sístan þátt í sigri Fram-liðsins. 

„Vörnin var frábær í síðari hálfleik eftir að nokkurt basl hafði verið á okkur í fyrri hálfleik."

„Það er nóg eftir af mótinu en vissulega er gott eftir það sem á undan er gengið hjá okkur að ná áttunda sætinu áður en að fríinu kom. Við verðum að vinna vel í fríinu og koma tvíefldir til leiks í febrúar," segir Kristófer Fannar en nánar er rætt við hann á meðfylgjandi myndskeiði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert