Elías Már aftur til Hauka

Elías Már Halldórsson fer inn úr horninu í leik gegn …
Elías Már Halldórsson fer inn úr horninu í leik gegn ÍBV. Skapti Hallgrímsson

Elías Már Halldórsson hefur náð samkomulagi við handknattleiksdeild Hauka um að snúa aftur til félagsins og spila með Haukum næsta eitt og hálfa árið.

Elías fór frá Haukum til Akureyrar í sumar en ákvað að rifta samningi sínum við Akureyringa.

Elías skoraði 42 mörk í 15 leikjum fyrir Akureyringa í vetur. Á síðasta tímabili var hann þriðji markahæsti leikmaður Hauka með 76 mörk í 19 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert