Guðjón Valur í úrslitaleikinn

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Ljósmynd/fcbarcelona.com

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í Barcelona leik í dag til úrslita í spænsku bikarkeppninni í handknattleik. Þeir unnu Naturhouse La Rioja, 35:25, í undanúrslitaleik í León á Spáni í gær. Barcelona mætir Granolles í úrslitaleiknum. Granolles lagði León , 30:27, í hinni viðureign undanúrslitanna. 

Barcelona hafði sjö marka forskot að loknum fyrri hálfleik í undanúrslitaleiknum, 19:12. Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um hvernig markaskorun dreifðist á milli leikmanna Barcelona. Þó er ljóst að Hvít-Rússinn, Siarhei Rutenka, skoraði átta mörk og Kiril Lazarov hafi skorað sjö mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert