Rúnar Kárason fór fyrir liði Hannover Burgdorf þegar liðið vann auðveldan sigur á Lu-Friesenheim í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag, 27:19.
Rúnar var markahæstur Burgdorf í leiknum með sex mörk, en liðið var þremur mörkum yfir í hálfleik, 12:9, en höfðu mikla yfirburði í seinni hálfleik.
Burgdorf er í áttunda sæti deildarinnar með 21 stig, en jafnræðið er mikið um miðja deild. Lu-Friesenheim er hins vegar í fjórða neðsta sæti með fjórtán stig.