Þórir tilnefndur sem þjálfari ársins

Þórir Hergeirsson, þjálfari norsku Evrópumeistaranna.
Þórir Hergeirsson, þjálfari norsku Evrópumeistaranna. AFP

Þórir Hergeirsson, þjálfari nýkrýndra Evrópumeistara Noregs, er einn af fimm þjálfurum sem handball-planet.com tilnefndir í kosningu sinni á handknattleiksþjálfara ársins í kvennaflokki í heiminum á árinu 2014.

Kosningin stendur yfir og hægt er að kjósa á forsíðu vefjarins, www.handball-planet.com

Þjálfararnir fimm sem eru tilnefndir eru eftirtaldir:

Jorge Duenas, Spáni
Þórir Hergeirsson, Noregi
Dragan Adzic, Svartfjallalandi og Buducnost
Ambros Martin, Györ (Ungverjalandi)
Helle Thomsen, Svíþjóð og Midtjylland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert