Fylkir vann sætan sigur í Eyjum

Patricia Szölösi skoraði 13 mörk í kvöld.
Patricia Szölösi skoraði 13 mörk í kvöld. mbl.is/Golli

Fylkir vann frábæran sigur á ÍBV úti í Vestmannaeyjum í kvöld í 14. umferð Olís-deildar kvenna í handknattleik. Mikil spenna var á lokamínútunum en Fylkir vann með einu marki, 34:33.

Fylkiskonur náðu tveggja marka forskoti, 34:32, þegar 1 mínúta og 42 sekúndur voru eftir, en ÍBV minnkaði muninn þegar 71 sekúnda var til leiksloka. Fleiri mörk voru ekki skoruð.

Patricia Szölösi var markahæst hjá Fylki með heil 13 mörk og Thea Imani Sturludóttir skoraði 8. Hjá ÍBV var Ester Óskarsdóttir markahæst með 10 mörk.

Fylkir er annað liðið sem nær að vinna í Eyjum í vetur en það gerði Grótta einnig í fyrsta leik ársins. ÍBV hefur tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum eftir áramótin.

Fjórtánda umferðin klárast í kvöld og þá skýrist staða liðanna betur en sem stendur er ÍBV með 18 stig í 4. sæti og Fylkir með 12 stig í 7. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert