Kristín með 16 mörk í óvæntum sigri Vals

Kristín Guðmundsdóttir lét skotin dynja á marki Fram í kvöld.
Kristín Guðmundsdóttir lét skotin dynja á marki Fram í kvöld. mbl.is/Eva Björk

Valskonur komu geysilega á óvart í Olís-deildinni í handknattleik kvenna í kvöld og unnu Fram á útivelli 26:23. Kristín Guðmundsdóttir hélt uppteknum hætti og skoraði 16 mörk fyrir Val í kvöld.

Var þetta aðeins annað tap Fram í deildinni í vetur en Valur er hins vegar í 5. - 6. sæti deildarinnar. Fram er nú tveimur stigum á eftir toppliði Gróttu.

Kristín skoraði 14 mörk fyrir Val á Akureyri fyrir aðeins rúmri viku síðan og gerði nú enn betur og var með 16 mörk af 26. Morgan Marie Þorkelsdóttir kom næst með 3 mörk.

Hulda Dagsdóttir var markahæst hjá Fram með 7 mörk og Ragnheiður Júlíusdóttir gerði 5.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert