Fram jafnaði Gróttu á toppi Olís-deildar kvenna í handknattleik í dag eftir öruggan sigur á ÍBV þegar liðin mættust í Eyjum, 26:18.
Framkonur náðu fljótt forystu og voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 14:9. Þær bættu í eftir hlé og uppskáru að lokum átta marka sigur, 26:18.
Fram og Grótta hafa nú bæði 26 stig á toppnum, en Grótta á leik til góða gegn Fylki síðar í dag.
Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 9, Vera Lopes 4, Drífa Þorvaldsdóttir 2, Telma Amado 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1.
Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 6, Elísabet Gunnarsdóttir 6, Marthe Sördal 4, Steinunn Björnsdóttir 3, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 2, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Hulda Dagsdóttir 2, Hekla Rún Ámundadóttir 1.