Morkunas frábær í sigri Hauka

Haukamaðurinn Adam Haukur Baumruk lætur vaða á mark ÍR í …
Haukamaðurinn Adam Haukur Baumruk lætur vaða á mark ÍR í leiknum í kvöld. mbl.is/Ómar

Haukar kræktu sér í tvö dýrmæt stig í Olís-deild karla í handknattleik þegar þeir lögðu ÍR-inga á heimavelli sínum að Ásvöllum, 29:24.

Haukarnir voru skrefinu á undan Breiðhyltingum allan tímann og sigur heimamanna var sanngjarn þó svo að ÍR-ingar hafi af og til átt góða spetti og náð að minnka muninn niður í eitt mark nokkrum sinnum í leiknum.

Giedrius Morkunas átti frábæran leik í marki Haukanna að varði á þriðja tug skota og mörg úr góðum færum ÍR-inga.

Mörk Hauka: Adam Haukur Baumruk 6, Árni Steinn Steinþórsson 5, Þröstur Þráinsson 3/2, Einar Pétur Pétursson 3, Vilhjálmur Geir Hauksson 3, Elías Már Halldórsson 2, Heimir Óli Heimisson 2, Tjörvi Þorgeirsson 2, Janus Daði Smárason 2, Jón Þorbjörn Jóhannsson 1.
Varin skot: Giedrius Morkunas 24/1.
Utan vallar: 6 mínútur

Mörk ÍR: Jón Heiðar Gunnarsson 4, Arnar Birkir Hálfdánsson 4, Björgvin Hólmgeirsson 3/1, Aron Örn Ægisson 3, Daníel Guðmundsson 2/2, Eggert Jóhannsson 2, Sigurjón Friðbjörn Björnsson 2, Bjarni Fritzson 2, Davíð Georgsson 1, Brynjar Steinarsson 1.
Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 15.
Utan vallar: 6 mínútur

Haukar 29:24 ÍR opna loka
60. mín. Vilhjálmur Geir Hauksson (Haukar) skoraði mark
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert