Ekkert rugl á okkur

„Við byrjuðum vel og lékum frábæran varnarleik sem lagði grunn að þessu sigri," sagði Kári Garðarsson, þjálfari bikarmeistara Gróttu í handbolta kvenna eftir stóran sigur á Val, 29:14, í úrslitaleik Coca Cola bikarsins í Laugardalshöllinni í dag. 

„Við lögðum upp með að vera fastar fyrir í vörninni og vera síðan ekki í einhverju rugli í sókninni," sagði Kári sem var í sjöunda himni eftir sigurinn enda tapaði hann síðast í úrslitum bikarkeppninnar með 14 marka mun.

„Við fögnum í kvöld en verðum síðan klárar í slaginn þegar keppni hefst í deildinni á miðvikudaginn," sagði Kári Garðarsson en nánar er rætt við hann á meðfylgjandi myndskeiði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert