Stjarnan upp að hlið Gróttu

Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði 7 mörk fyrir Stjörnuna.
Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði 7 mörk fyrir Stjörnuna. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Stjarnan komst upp að hlið Gróttu í toppsæti Olís-deildar kvenna í handknattleik eftir sigur gegn Þór/KA, 27:25, í Mýrinni í dag.

Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði 7 mörk fyrir Stjörnuna, Esther Viktoría Ragnarsdóttir skoraði 6 og Sólveig Lára Kjærnested 5.

Hjá Akureyrarliðinu var Paula Chirlia lang-atkvæðamest en hún skoraði 12 mörk og þær Anna Kristín Einarsdóttir og Þórunn Eva Sigurbjörnsdóttir skoruðu 3 mörk hvor.

Grótta og Stjarnan hafa bæði 32 stig en Grótta á leik til góða. KA/Þór er í 11. sætinu með 5 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert