Björgvin hættir hjá ÍR

Björgvin Rúnarsson fyrir miðri mynd.
Björgvin Rúnarsson fyrir miðri mynd. Ljósmynd/ÍR

Björgvin Rúnarsson mun ekki þjálfa kvennalið ÍR á næstu leiktíð í Olís-deildinni í handknattleik en hann tók við þjálfun liðsins á síðasta sumri. 

Frá þessu er greint á facebooksíðu handknattleiksdeildar ÍR. Þar segir jafnframt að ákvörðunin um að Björgvin haldi ekki áfram að loknu núverandi keppnistímabili sé tekin í mesta bróðerni. 

ÍR sendi í vetur lið til keppni Olís-deild kvenna eftir nokkurra ára fjarveru í efstu deild. Liðið hefur átt erfitt uppdráttar og aðeins fengið eitt stig í átján leikjum sínum til þessa en fjórar umferðir eru eftir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert