Fylkir krækti í stig gegn Fram

Patricia Szölösi var nærri búin að tryggja Fylki sigur á …
Patricia Szölösi var nærri búin að tryggja Fylki sigur á Fram í kvöld. Síðasta skot hennar hafnaði í markslánni. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Fylkir gerði sér lítið fyrir og krækti í eitt stig gegn Fram í Olís-deild kvenna í handknattleik í kvöld er leikið var í Fylkishöllinni, 18:18. Þar með endurheimti Fylki sjötta sæti deildarinnar sem Valur náði um stund að verma eftir sigur á FH-ingum. 

Fylkir var tveimur mörkum yfir í hálfleik gegn Fram, 12:10, og var þremur mörkum yfir, 18:15, þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Patricia Szölözi gat tryggt Fylki sigur í blálokin en boltinn hafnaði í markslá Fram-liðsins á síðustu sekúndu. 

Fram er í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig þegar þrjár umferðir eru eftir en Grótta og Stjarnan sitja í tveimur efstu sætunum. 

ÍBV vann HK í Digranesi, 26:21, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 14:10, og loks unnu Haukar öruggan sigur á neðsta liðinu, ÍR, 32:23, í íþróttahúsinu við Austurberg. 

Fresta varð viðureign Gróttu og Selfoss vegna veðurs. 

Fylkir - Fram 18:18 (12:10)
Mörk Fylkis: Thea Imani  Sturludóttir 6, Patricia Szölözi 4, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 3, Hildur Björnsdóttir 2, Sigrún Birna Arnardóttir 2, Kristjana Björk Steinarsdóttir 1.
Mörk Fram: Elísabet Gunnarsdóttir 4, Steinunn Björnsdóttir 4, Ragnheiður Júlíusdóttir 3, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Marthe Sördal 2, Elva Þóra Arnardóttir 1, Hekla Rún Ámundadóttir 1, Hulda Dagsdóttir 1.

HK - ÍBV 21:26 (10:14)
Mörk HK: Gerður Arinbjarnar 5, Sigríður Hauksdóttir 4, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 4, Emma Havin Sardardóttir 3, Þórhildur Braga Þórðardóttir 3, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 2.
Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 10, Vera Loopez 4, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 4, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Elín Anna Baldursdóttir 2, Telma Amado 2, Anna Þyri Ólafsdóttir 1.

ÍR - Haukar 23:32 (11:22)
Mörk ÍR: Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir 8, Karen Tinna Demian 4, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 4, Auður Margrét Pálsdóttir 2, Petra Waage 2, Sif Maríudóttir 2. 
Mörk Hauka: Ásta Björk Agnarsdóttir 7, Anna Lillian Þrastardóttir 5, Vilborg Pétursdóttir 5, Áróra Pálsdóttir 4, Ragnheiður Ragnarsdóttir 4, Karen Helga Diönudóttir 3, Gunnhildur Pétursdóttir 2, Agnes Egilsdóttir 1, Ragnheiður Sveinsdóttir 1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert