Guðmundur Hólmar í leikbann

Guðmundur Hólmar Helgason stöðvaður af vörn FH í kvöld.
Guðmundur Hólmar Helgason stöðvaður af vörn FH í kvöld. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Guðmundur Hólmar Helgason leikmaður Vals var í dag úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ.

Guðmundur fékk útilokun með skýrslu vegna grófs brots á síðustu mínútu fyrri framlengingar í viðureign Vals og FH í undanúrslitum Coca Cola bikarsins um síðustu helgi þar sem FH-ingar höfðu betur.

Guðmundur verður því fjarri góðu gamni annað kvöld þegar Valsmenn fá nýkrýnda bikarmeistara og ríkjandi Íslandsmeistara ÍBV í heimsókn í Olís-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert