Unnur og félagar fengu skell

Unnur Ómarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Skrim í kvöld.
Unnur Ómarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Skrim í kvöld. Ómar Óskarsson

Unnur Ómarsdóttir og samherjar hennar í Skrim áttu lítið að gera í meistarana í Larvik í rimmu liðanna í norsku úrvalsdeildinni í kvöld en leikið var í Larvik. Heimaliðið, sem hefur unnið alla nítján leiki sína í deildinni, vann með 14 marka mun, 35:21.

Unnur skoraði tvö af mörkum Skrim sem situr í sjöunda sæti af 12 liðum í deildinni. 

Gísli Jón Þórisson skoraði tvö mörk þegar Nötteröy tapaði fyrri Bodö, 36:29, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni. Einar Rafn Eiðsson náði ekki að skora mark fyrir Nötteröy sem er í 11. og næst neðsta sæti deildarinnar þegar liðið á tvo leiki eftir. Stutt er hinsvegar upp í áttunda sæti deildarinnar, aðeins tvö stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert